Engar myndir af prúðbúnum gestum?

Á 17. júní er venja að bjóða erlendum sendiherrum og fleiri sendifulltrúum annarra landa til athafnarinnar á Austurvelli fyrir hádegið, þar sem forsætisráðherra ávarpar samkunduna.  Ég hef sjálf verið viðstödd og það er ákaflega skemmtilegt að sjá að margir hinna erlendu gesta eru uppáklæddir í þjóðbúninga sinna landa.  Mér finnst sérstaklega gaman að sjá konur frá Afríkuríkjum sem klæðast litfögrum búningum sínum.  Ég hef líka furðað mig á því að engir fjölmiðlar gefa þessu gaum.  Hvergi birtast myndir af þessum skrautbúnu hátíðargestum sem sýna okkur mikla virðingu með því að skrýðast sínum þjóðbúningum á hátíðisdegi okkar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband