3.2.2007 | 23:24
Laugardagur til lukku og Spaugstofan
Nýtt afl (grín ) er að koma fram á sjónarsviðið í íslenskri pólitík. Fundað var í dag og á næstunni verða sett fram skýr markmið framboðs sem er hægra megin við miðju í pólitísku litrófi stjórnmálanna. Bíðið spennt eftir framhaldinu - dokið við - hér rétt handan við hornið verða æsispennandi tíðindi...
Spaugstofan í kvöld lýsti frábærlega vel glundroðanum á landsþingi Frjálslynda flokksins um liðna helgi og það var líka bráðfyndið að gera grín að frasanum mínum: ,,Það var ekki ég sem yfirgaf flokkinn heldur flokkurinn sem yfirgaf mig". Það var með vilja gert hjá mér að orða þetta svona, því eins og margir vita orðaði faðir minn brotthvarf sitt úr Sjálfstæðisflokknum með sama hætti. En ég minni á yfirlýsingar þingflokksins: ,,Þingflokkurinn vill ekki Margréti" (Sjá Mbl. 18. janúar sl.). Þeir yfirgáfu mig svo sannarlega, ekki satt?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.2.2007 kl. 00:07 | Facebook
Athugasemdir
þú segir aldeilis fréttir!!!
Sveinn Arnarsson, 3.2.2007 kl. 23:33
Rálegg ykkur eindregið að staðsetja flokkinn ekki að svo komnu máli á einhverri stjórnmálalínu pólutískts litrófs.Hægra megin við miðju verður bara skilið þannig ,að þinn flokkur verði næsta hækja íhaldsins.Látið kjósendur meta á hvaða stalli þið standið,eftir að hafa tilkynnt ykkar stefnumál í komandi kosningum.
Kveðja
Kristján Pétursson, 3.2.2007 kl. 23:42
Ég bíð spenntur eftir næstu fréttum frá þér /ykkur
Guðmundur H. Bragason, 3.2.2007 kl. 23:57
Ókey!! Þú mátt vera með, ekki þú, þú, þú, ekki þú, þú, þú, ekki þú, ekki þú, þú, alls ekki þú......en allir meiga kjósa mig!!
Jóhann H., 4.2.2007 kl. 03:19
Já, þetta er spennandi! En mér er spurn hvort við þurfum annað afl á hægri vængnum eða hvort ekki væri sterkast fyrir þig að sýna að þú getir unnið með þeim sem fyrir eru og tæklir annað hvort Árna út á Suðurlandinu eða bætir við fylgi Framsóknarflokksins??? Þú ert búin að sýna að þú ert þroskaður pólitíkus, er þá ekki réttast að snúa sér að þroskuðum flokki?
Mbk.
Judas
Regnboga-blogg, 4.2.2007 kl. 14:36
Alltaf gaman að sjá hina "nafnlausu" tjá sig hér á Blogginu. Klapp fyrir þeim!
Bragi Einarsson, 4.2.2007 kl. 22:58
Ég bíð spennt eftir næstu fréttum frá þér
Adda bloggar, 5.2.2007 kl. 00:02
Sæl Margrét.
Um leið og ég þakka þér fyrir samstarfið á liðnum árum þá vil ég benda þér á það að nokkur munur er á því hvernig Morgunblaðið kýs að túlka fréttir og hafa sem fyrirsagnir og því sem heitir yfirlýsing þingflokks.
Að öðru leyti er mín skoðun sú að þessi úrsögn sé að verða nokkuð yfirþyrmandi dramatíseruð í heildina og yfirleitt er vandamál að gera út á slíkt til lengdar því það vill snúast í öndverðu sína eins og sjá mátti í Spaugstofunni.
kv.
Guðrún María Óskarsdóttir form. stjórnar kjördæmafélags Frjálslyndra í Suðvesturkjördæmi og ritari FFH í Hafnarfirði.
Guðrún María Óskarsdóttir., 5.2.2007 kl. 01:35
Sæl Margrét,
Erlingur Þorsteinsson
erlingurt@gmail.com
Erlingur Þorsteinsson (IP-tala skráð) 10.2.2007 kl. 12:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.