Sigurlín sigurvegari

 Úr bloggi Sigurlínar Margrétar Sigurðardóttur, varaþingmanns Frjálslynda flokksins í Suðvesturkjördæmi í dag:

 "Ég get ekki sagt annað en að ég sé mjög ánægð með niðurstöðuna á miðstjórnarfundi Frjálslynda flokksins sem ég missti af í gærkvöldi.  Mér finnst þetta skynsamleg lending, nokkurskonar sátt milli allra og er það vel. Um upphaf deilanna ætla ég sem minnst að tjá mig um en það skiptir í raun engu hvert deiluefnið er, menn og konur í svona stöðu eiga bara ekkert að vera að deila með blaðamenn hangandi fyrir sér sem skrumskæla hvert orð.   Ég hef oft verið spurð á meðan þessu stóð með hverjum ég stæði, manni var stundum eins og stillt upp á vegg og krafist svara af manni.  Ég er ekkert mikið fyrir að skipa mér í eitthvað horn með hinum og þessum. Það er málefnastefna flokks míns sem gildir og hún er í fullu gildi hvað öllum deilum líður. En hér get ég alveg sagt að Margrét Sverrisdóttir er mín kona, hún er minn mentor í þátttöku minni í stjórnmálastarfi. Það er hún sem prófarkarles allar greinar mínar og ræður án þess svo mikið að breyta efninu á nokkurn hátt, hugsun mín í efnið er það sem gildir. Margréti Sverris kynntist ég fyrst fyrir alvöru þegar ég fékk boð frá félagsmálaráðuneytinu um að taka þátt í námskeiði fyrir konur í stjórnmálastarfi árið 2003.  Ég mátti velja mér leiðbeinanda og ég valdi Margréti Sverrisdóttur af þeirri ástæðu að mér fannst og finnst hún enn vera mikill leiðtogi, framsýn með einsdæmum og stendur fast á sínu.  Eftir því sem ég kynntist henni betur sá ég að ég hafði rétt fyrir mér. Það er gott að vinna með henni.  Hún ver málefnastefnu flokks síns af heillindum og veit alveg hvað hún er að tala um þegar hún þylur yfir stefnuskránna sem og veit nákvæmlega fyrir hvort málefni falla inn í stefnu flokksins eða ekki. Margt í stefnuskrá flokksins lýtur að sjálfsögðum mannréttindum. Hún er líka trú sínu fólki.  Þingmenn flokksins hafa verið mjög heppnir að hafa hana sem framkvæmdastjóra sinn þetta kjörtímabil, hún hefur reynst þeim vel og það veit ég."

Sigurlín, kærar þakkir fyrir hlý orð í minn garð.  Þú veist sjálf hversu mikils ég met þig - enda met ég þig að verðleikum.  Þú ert einstök kona og ég hef alltaf dáðst að sjálfstæði þínu, kjarki, frábærri kímnigáfu og greind.  Það er ótrúlegt að kynnast því hvernig þú stendur alltaf stolt og berst fyrir rétti þínum og fjölda annarra.  Ástæðan fyrir því að ég breyti ekki hugsun þinni við yfirlestur greina sem þú skrifar er einfaldlega sú að hugsunin kemur alltaf skýrt fram.  Það er fullkomlega eðlilegt að það þurfi að ,,snurfusa" (eins og við köllum það báðar) lítið eitt ritaðan texta hjá konu sem hefur ekki heyrt mælt mál síðan hún var barn.  En það hefur verið sérstök lífsreynsla að kynnast því hvernig þú hefur rutt öllum hindrunum úr vegi og staðið stolt og keik í ræðupúlti á Alþingi og barist fyrir jafnrétti allra þjóðfélagshópa. Þú verðskuldar sannarlega að vera í fararbroddi í kosningum til Alþingis á vori komanda.

Baráttukveðja,  þinn vinur Margrét Sverrisdóttir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl Margrét.

Ég tek undir það að Sigurlín Margrét er dugnaðarkona í baráttu , það þekki ég vel úr siðustu kosningum hér í kjördæminu. Það atriði að nægilega sé að því staðið að fatlaðir eigi aðgöngu á hið háa Alþingi varðandi til dæmis táknmálstúlkun er atriði sem enn þarf að bæta úr hvað varðar , kostnaðarþáttöku. Við Frjálslyndir þurfum því að leggjast á eitt til þess að koma því áfram að allir séu jafnsettir hvað varðar þennan kostnaðarþátt í raun.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 16.12.2006 kl. 02:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband