10.3.2007 | 16:40
Frétt af Lundúnaferð
Vegna fréttar í Fréttablaðinu í dag af kvennaferð til Lundúna, vil ég taka fram að það eina sem ég hef sagt um ferðina er það sem eftir mér var haft innan gæsalappa, enda birtist það hér á síðunni. "Þetta var frábær ferð og ég naut þeirra forréttinda að vera með stórum og skemmtilegum hópi kvenna".
Allt annað hefur blaðið frétt annars staðar frá, en ég hef orðið vör við að ýmsir telja það vera eftir mér haft. Þetta leiðréttist hér með enda tek ég undir með einni samferðakonu minni sem sagði: "What happened in London stays in London"
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Töluðu þið ensku í ferðinni?
Guðmundur Guðmundsson (IP-tala skráð) 11.3.2007 kl. 10:35
Borða og sofa vel er lykillinn að góðum árangri.
Björn Heiðdal, 15.3.2007 kl. 00:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.